|
Sjóstangaveiðifélag Siglufjarðar Upplýsinga og myndasíða SJÓSIGL |
|
16.05.2012 20:28Sjónes Kæru veiðifélagarÞá er komið að sjómannadagsmóti Sjónes sem gefur stig til Íslandsmeistaratitils. Fimmtudagur 31. maí.Mótið verður sett og mótsgögn afhent í Hótel Egilsbúð fundasal kl. 20:00. Súpa og brauð í boði Sjónes. Föstudagur 1. Júní.Lagt úr höfn kl. 6:00 og veiðum hætt kl. 14:00. Kaffi og brauð á bryggjunni. Frítt í sund báða daganna. Kl. 20:30 farið yfir tölur dagsins, í Hótel Egilsbúð. Laugardagur 2. Júní.Lagt úr höfn kl. 6:00 og veiðum hætt kl. 13:00. Kl 14:00 Tekið verður á móti keppendum, mökum,og skipstjórum, með kaffi,og kökum á löndunar stað. Kl. 19:00 opnar Hótel Egilsbúð kl 20:00 hefst lokahófið með þriggja rétta veislumáltíð, og verðlaunaafhendingu.
Í mótinu verða blandaðar sveitir karla og kvenna. Mótsgjald er 15.000.- krónur, og innifalið miði á lokahófið, aukamiði kostar 5.000.- Gistimöguleikar.
Tónspil herbergi : Sími : 477 1580 - 894 1580 Pétur. Heimavist verkmenntaskólans ( Hótel Edda ) Sími 8951987 Árni. Hótel Capitano Sími 477 1800 - 861 4747 Magni. Þátttaka tilkynnist til formanns þíns félags, sem mun svo tilkynna okkur um þátttöku þína, í síðasta lagi miðvikudaginn 23. maí. Skrifað af Herði 11.05.2012 20:22Sjóve 2012Veiðifélagar. Engin bréf verða send út frá Sjóve. Meðfylgjandi er dagskrá Hvítasunnumótsins með öllum upplýsingum. Vinsamlega hafið samband við formann þíns félags fyrir 16.maí þið sem ætlið að keppa. Annars vísast í heimasíðu Sjóve.
Hvítasunnumót Sjóve sem gefur stig til Íslandsmeistaratitils verður haldið 26. og 27. maí næstkomandi í Vestmannaeyjum. Dagskrá: Laugardagurinn 26. maí Sunnudagurinn 27. maí, Hvítasunnudagur: ýmislegt grín og gaman Skrifað af Herði 05.05.2012 13:31ÓtitlaðAðalmót Sjór 18.og19. maí 2012 er haldið á Patreksfirði skráningar til þíns formanns í síðasta lagi 8.maí kl 20,00 Skrifað af Herði 03.12.2011 21:02AðalmótAðalmót 2012 Sjór. Patreksfjörður 18-19 maí Sjóve. Vestmannaeyjar 26-27 maí Sjónes. Neskaupsstaður 1-2 júní Sjóskip. Akranes 22-23 júní Sjóís. Bolungarvík 6-7 júlí Sjósnæ. Ólafsvík 20-21 júlí Sjósigl. Siglufjörður 27-28 júlí Sjóak. Dalvík 17-18 ágúst Skrifað af Herði 29.08.2011 21:112011Ágætu veiðifélagar. Stjórn félagsins þakkar ykkur öllum fyrir vel heppnað sumar á sjóstöng. Óskum íslandsmeisturunum og öllum öðrum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn. Undirbúum okkur vel í vetur fyrir næsta sumar. ![]() Skrifað af Herði 14.08.2011 18:11íslandsmeistariÍslandsmeistari kvenna 2011 er Eygló Óttarsdóttir Sjósigl. ![]() Skrifað af Herði
Flettingar í dag: 22 Gestir í dag: 7 Flettingar í gær: 37 Gestir í gær: 13 Samtals flettingar: 33713 Samtals gestir: 10819 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 14:05:49 |
Vafraðu umEldra efni
Tenglar |